27.12.2011 13:20Íþróttamaður ÞróttarÍ dag verður íþróttamaður Þróttar árið 2011 valinn við hátíðlega athöfn í sal Nesskóla, dagskráin byrjar kl. 17:00. Anton Bragi Jónsson var á dögunum valinn knattspyrnumaður Þróttar og er hann því tilnefndur frá knattpsyrnudeildinni þetta árið. Skrifað af Arnari 15.12.2011 13:27Gleðileg jólKnattspyrnudeild Þróttar vill þakka öllum sem komu á jólabingóið kærlega fyrir komuna, þetta var vel sótt bingó og seldust öll bingóspjöldin upp sem er frábært. Með jólabingóinu erum við komin í jólafrí en þó eru ekki allir komnir í frí því Anton Bragi knattspyrnumaður Þróttar 2011 hefur enn og aftur verið boðaður á úrtaksæfingu U 17 ára um næstu helgi. Að lokum óskar knattspyrnudeildin öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Æfingar hjá Þrótti byrja svo aftur á nýju ári mánudaginn 9. janúar. Skrifað af Arnari 12.12.2011 11:42JólabingóHið árlega jólabingó Þróttar verður miðvikudaginn 14. des kl. 20:00 í Egilsbúð. Fjöldi glæsilegra vinninga. Verð á spjaldi er 800 kr. 2 spjöld á 1.500 kr. 3 spjöld á 2.100 kr. 4 spjöld á 2.600 kr. og 5 spjöld á 3.000 kr. Börn 10 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum. Verið velkomin á jólabingó Þróttar. Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar. Skrifað af Arnari 08.12.2011 09:31Knattspyrnumaður ÞróttarKnattspyrnumaður Þróttar árið 2011 er Anton Bragi Jónsson. Þetta þýðir að Anton er tilnefndum sem íþróttamaður Þróttar árið 2011 en úrslit úr því vali verða kunngjörð síðar í mánuðinum. Anton spilaði með 3. fl. karla í sumar og var lykilmaður í því liði. Hann ásamt nokkrum öðrum strákum í 3. flokki tók þátt á úrtaksæfingu sem var hér fyrir austan í apríl og í framhaldi af þeirri æfingu hefur hann þrívegis verið boðaður á æfingar hjá U-17 ára landsliðinu. Anton tók þátt í sínum fyrsta meistaraflokks leik fyrir Fjarðabyggð um síðustu helgi og stóð sig með prýði. Stjón knattspyrnudeildar Þróttar óskar Antoni til hamingju með titilinn og tilnefninguna. Skrifað af Arnari 01.12.2011 12:07Kallinn er með þetta!Enn og aftur hefur Anton Bragi verið valinn í úrtakshóp U 17 ára landsliðsins. Þetta mun vera í þriðja sinn sem Anton er valinn og er hann eini leikmaðurinn frá Austurlandi í þetta skiptið. Það er óhætt að segja að "kallinn sé með þetta" :) Skrifað af Arnari 14.11.2011 10:27Eimskipsmótinu lokiðEimskipsmótið hjá 5., 6. og 7. flokki fór fram laugardaginn 12. nóvember en um 280 krakkar tóku þátt að þessu sinni frá fjórum félögum. Fjarðabyggð var með 19 lið í öllum flokkum, Höttur með 12 lið, Einherji 3 lið og Huginn 1 lið. Mótið gekk vel í alla staði og eins og sjá má á myndinni þá var gleðin í fyrirrúmi hjá börnunum. Fleiri myndir frá Eimskipsmótinu er að finna hér en myndirnar koma frá Steina "stóra" (sem er fyrir miðri mynd) og eru allar af 7. flokki. ![]() Skrifað af Arnari 04.11.2011 09:10Anton Bragi í úrtakshópi U17 karla.Skrifað af Arnari 01.11.2011 13:11Eimskipsmót yngriflokka FjarðabyggðarYngriflokkar Fjarðabyggðar í
samvinnu við Eimskip heldur knattspyrnumót í Fjarðabyggðarhöllinni á
Reyaðrfirði fyrir 5., 6. og 7. flokk karla og kvenna. Mótið verður laugardaginn
12. nóvember og er áætlað 6. og 7. flokkur verði frá kl. Skrifað af Arnari 25.10.2011 13:38Knattspyrnuakademía TandrabergsKnattspyrnuakademía Tandrabergs sem yngri flokkar Fjarðabyggðar standa að fór fram um helgina 14. og 15. okt í Fjarðabyggðarhöllinni. Fótboltaæfingar, kvöldvaka og fyrirlestur einkendu dagskrána sem byrjaði kl. 15:00 á föstudegi og lauk kl. 16:00 á laugardegi. Um 200 þátttakendur víðsvegar af austurlandi á aldrinum 6 - 15 ára tóku þátt að þessu sinni og hefur þátttakan aldrei verið meiri en þetta var í þriðja skiptið sem akademían er haldin undir merkjum Tandrabergs. Um 14 þjálfarar úr Fjarðabyggð og Pepsídeild kvenna ásamt leikmönnum úr pepsídeild karla stjórnuðu æfingum og voru krakkarnir mjög ánægðir með þær æfingar sem boðið var upp á. Einng var sú nýbreytni þetta árið að boðið var upp á fyrirlestur fyrir foreldra sem þótti takast mjög vel. Yngri flokkar Fjarðabyggðar vilja þakka öllum þátttakendunum fyrir komuna, öllum þjálfurum og þeim fjölmörgum foreldrum sem lögðu hönd á plóginn fyrir sitt framlag. Skrifað af Arnari 17.10.2011 11:08VetrarfríEins og venjulega þá verður vetrarfrí á fótboltaæfingum hjá Þrótti um leið og hjá grunnskólanum dagana 21., 22. og 25. okt. (fös, lau og þri). Samæfingar verða samt sem áður eins og venjulega á mánudaginn og þriðjudaginn í næstu viku. Skrifað af Arnari 13.10.2011 15:20Knattspyrnuakademía TandrabergsDagskrá akademíunnar ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum er að finna hér til hægri á síðunni. Skrifað af Arnari 11.10.2011 12:44KSÍ II þjálfaranámskeið á ReyðarfirðiKnattspyrnusamband
Íslands mun halda KSÍ II þjálfaranámskeið á Reyðarfirði helgina 18.-20.
Nóvember. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig tímanlega. Dagskrá námskeiðsins
er í vinnslu og verður auglýst síðar. Námskeiðsgjald er kr.
15.000,- Námskeiðið er opið öllum og skráning er hafin. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og með því að hringja í síma 510-2977. Vinsamlegast látið eftirfarandi upplýsingar fylgja skráningu: Nafn, kennitala, félag, símanúmer og tölvupóstfang. Skrifað af Arnari 28.09.2011 09:56Alcoadagur og slúttFarið verður í leiki og svo fá allir grillaðar pylsur í lokin. Skrifað af Arnari 27.09.2011 10:17Knattspyrnuakademía TandrabergsKnattspyrnuakademía Tandrabergs og
Fjarðabyggðar 2011 Dagskrá Föstudagur 14. október Æfingar í
Fjarðabyggðarhöllinni 5. fl. kl. 15:00 - 16:00 Fyrirlestur ÍSÍ kl. 16:30 - 17:00 Matur kl. 19:30 4. fl. kl. 16:00 - 17:00 Fyrirlestur ÍSÍ kl. 17:30 - 18:00 Matur kl. 19:00 3. fl. kl. 17:00 - 18:00 Fyrirlestur ÍSÍ kl. 18:30 - 19:00 Matur kl. 20:00 5. fl. kl. 18:00 - 19:00 Fræðslufundur með þjálfurum
kl. 19:15 - 20:00 Viðar Sigurjónsson Matur frá kl. 19:00 - 20:00
í Grunnskóla Reyðarfjarðar Kvöldvaka frá kl. 21:00 -
22:30 í Grunnskóla Reyðarfjarðar/ Fjarðabyggðarhöll Svefn kl. 23:00 Laugardagur 15. október Morgunmatur
frá kl. 08:00 - 09:30 í Grunnskóla Reyðarfjarðar Hádegismatur
frá kl. 12:30 - 13:30 í Grunnskóla Reyðarfjarðar Æfingar í Fjarðabyggðarhöllinni 4. fl. Kl. 09:00 - 10:00 Morgunmatur kl. 08:00 Hádegismatur kl. 13:30 3. fl. Kl. 10:00 - 11:00 Morgunmatur kl. 08:30 Hádegismatur kl. 12:00 5. fl. Kl. 11:00 - 12:00 Morgunmatur kl. 09:00 Hádegismatur kl. 12:30 4. fl. kl.
12:00 - 13:00 6. & 7. fl Kl.
13:00 - 14:00 ávaxtanesti kl. 14:15
- 14:45 í Grunnskólanum 3. fl. kl.
14:00 - 15:00 6. & 7. fl Kl.
15:00 - 16:00 Fyrirlestur á laugardegi í Grunnskóla
Reyðarfjarðar. 5. fl. Kl. 09:45 - 10:15 4. fl. Kl. 10:15 - 10:45 3. fl. Kl. 13:00 - 13:30 Fræðslufundur fyrir foreldra kl. 14:00
- 14:45 í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Dagkrá lokið kl. 16:00 21.09.2011 16:05Æfingatafla vetrarinsÆfingatafla vetrarins er komin á heimasíðuna, hana er hægt að nálgast hér. Skrifað af Arnari Flettingar í dag: 58 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 67 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 217650 Samtals gestir: 48511 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:44:49 |
Vafraðu umclockhere Tenglar
Þróttur Nes Nafn: Knattspyrnudeild Þróttar NeskaupstaðFarsími: 847-8208Tölvupóstfang: throtturnes@centrum.is, sirarnar@simnet.isAfmælisdagur: 5. júlíHeimilisfang: Nesgata 5Staðsetning: 740 NeskaupstaðurHeimasími: 477-1398Bankanúmer: 1106-26-213 |