16.05.2012 13:16

Aðalfundur

Aðalfundur knatttspyrnudeildarinnar verður sunnudaginn 20. maí kl. 20:00 í sal Nesskóla. Aðalfundur hefur ekki verið haldinn síðustu 3 ár og því verða árin 2009, 2010 og 2011 öll tekin fyrir á þessum fundi.

Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir.

16.05.2012 11:55

Styttist í sumarið

Þá fer vonandi að styttast í sumarið og vonandi getum við farið að hafa æfingar úti á velli. Þó er enn snjór á vellinum en hann hverfur af honum um helgina segja alfróðir menn.

Búið er að setja linka inn hjá öllum flokkum sem taka þátt í Íslandsmóti sumarið 2012 hér til hægri á síðunni þar sem hægt er að sjá leikjaplan sumarsins.

Fyrstu leikir sumarsins hér á Norðfjarðarvelli í yngriflokkunum verða laugardaginn 26. maí en þá spilar 5. flokkur karla í A-, B- og C-liðum við Þór frá Akureyri. Hér er hægt að sjá alla leiki sem fara fram á Norðfjarðarvelli í sumar og hvetjum við alla til að kíkja á völlinn og sjá framtíð knattspyrnunnar.

Æfingatafla sumarsins verður svo send í öll hús í næstu viku en hún mun taka í gildi mánudaginn 4. júní auk þess sem hún verður birt hér á heimasíðunni

Leikjaskólinn mun svo hefjast mánudaginn 11. júní og skólastjóri Leikjaskólana í sumar verður Salóme Rut Harðardóttir. Skólaplan sumarsins verður sent í öll hús þar sem nánari upplýsingar um skráningar og dagskrá verður að finna.

Að lokum er svo minnt á að aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar verður sunnudaginn 20. maí kl. 20:00 í sal Nesskóla. Allir velkomnir.

17.04.2012 13:24

Fjarðaálsmótin

Ný heimasíða Fjarðaálsmótanna er komin í loftið og eru allar helstu upplýsingar að finna þar.

29.03.2012 10:45

Páskafrí í boltanum

Við tökum okkur páskafrí í boltanum frá og með mánudeginum 2. apríl til þriðjudagsins 10. apríl en þá byrja æfingar aftur samkvæmt æfingatöflu.

26.03.2012 11:05

Goðamót 6. karla lokið

Þá er Goðamóti 6. karla lokið. Fjarðabyggð var með 3 lið srkáð til leiks, A-, B- og D-lið. Ekki gekk öllum liðunum vel en þó var þetta fínn árangur hjá drengjunum þar sem stór hluti þeirra var að fara á sitt fyrsta stórmót. A-liðið endaði í 6. sæti, B-liðið í 9. sæti og D-liðið í 6. sæti. 

21.03.2012 12:23

Unglingadómaranámskeiði í Verkmenntaskóla Austurlands frestað

Athugað síðar með að halda nýtt námskeið


Fyrirhuguðu unglingadómaranámskeiði í Verkmenntaskóla Austurlands, sem halda átti fimmtudaginn 22. mars, hefur verið frestað vegna ónógrar þátttöku.  Athugað verður síðar með að halda námskeiðið ef þátttaka verður næg

20.03.2012 11:03

Páskabingó knattspyrnudeildar Þróttar

Hið árlega páskabingó Þróttar verður haldið í Egilsbúð þriðjudaginn 27. mars kl. 20:00. Mætum stundvíslega. Börn yngri en 10 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum.

 

Verð á bingóspjaldi: kr. 700-

 

Þökkum eftirtöldum styrktaraðilum stuðninginn:

Nesbakki,Samkaup, Bykó,Egilsbúð, Ölgerð Egils Skallgrímssonar, Sparisjóður Norðfjarðar, Hótel KEA, Greifinn Akureyri, Sjóvá, VÍS, Mývatn Sel-Hótel, Fuglasafn Sigurgeris, AFL-starfsgreinafélag, KFF, Launafl, Bílaleiga Akureyrar, Gröftur, Olís, Jarðböðin Mývatni, Síldarvinnslan Neskaupstað og SÚN.

15.03.2012 15:49

Unglingadómaranámskeið

Unglingadómaranámskeið í Verkmenntaskóla Austurlands 22. mars

Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Neskaupstað í Verkmenntaskóla Austurlands á Norðfirði fimmtudaginn 22. mars og hefst kl. 17:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is

Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið.

06.03.2012 11:07

Goðamót 5. og 6. kvenna

Um síðustu helgi fóru 5. og 6. flokkur kvenna á Goðamót á Akureyri. 5. flokkur kvenna fór með tvö lið, sem kepptu í B- og C- liða keppninni. B-liðið endaði í 7. sæti og C-liðið endaði í 5. sæti. Fínn árangur hjá stelpunum sem verða eflaust sprækar á vellinum í sumar.

6. flokkur kvenna fór með eitt lið og spiluðu í C-liða keppninni. Það voru kannski mistök að skrá þær þar því þær unnu alla leikina í riðlakeppninni nokkuð örugglega og heyrðust nokkrar óánæguraddir fyrir norðan frá öðrum liðum vegna þess. En hvað gátum við gert. Stelpurnar voru lítið sem ekkert búnar að æfa saman auk þess sem aðeins þrjár voru á eldra ári, fjórar á yngra ári og ein bættist svo í hópin á síðustu stundu úr 7. flokki. Þannig að það var mat okkar að þær ættu heima í C-liða keppninni. En stelpurnar unnu alla sína leiki og enduðu mótið í 1. sæti. Til hamingju með það stelpur.

Jón Guðmundsson (húsvörður) og myndasmiðurinn síungi var á staðnum og tók nokkrar myndir og þær má sjá hér http://estthor2000.123.is/album/default.aspx?aid=222723&vt=all

Einnig er hægt að fara inná heimasíðu Goðamótsins og skoða myndir þar. http://godamot.blog.is/blog/godamot/

27.02.2012 14:15

3. flokkur karla á verðlaunapall

3. flokkur karla hefur staðið í ströngu síðustu vikurnar. Helgina 10. - 12. febrúar fóru strákarnir suður og spiluðu þar tvo æfingaleiki auk þess að taka þátt í úrslitakeppni Íslandsmótsins í Futsal í Ólafsvík. Æfingaleikirnir gengu vel en á föstudagskvöldinu spiluðu þeir við Fylki og fór sá leikur 3-3. Á sunnudagsmorgunin spiluðu þeir svo við Gróttu og unnu leikinn 5-4. Í millitíðinni, það er á laugardeginum léku þeir til úrslita í Futsal en mótið fór fram í Ólafsvík. Það gekk ekki eins vel en þeir enduðu neðstir í sínum riðli en unnu að lokum ÍA 3-0 í leik um 7. sætið.

Um síðustu helgi (24. - 26. feb) fóru strákarnir á Greifamótið á Akureyri með tvö lið. A-liðinu gekk ágætlega, þeir enduðu í 4. sæti með tvo sigra og þrjú töp. B-liðinu gekk ágætlega líka. Þeir komust á pall, urðu í 3. sæti með tvo tapleiki, tvö jafntefli og einn sigur sem kom á hárréttu augnabliki því það var leikurinn um 3. sætið.
.

23.02.2012 11:14

Vetrarfrí

Eins og venjan er þá er vetrarfrí á öllum æfingum fimmtudag, föstudag og laugardag nema á samæfingum. Þær haldast óbreyttar. 

23.02.2012 11:06

Goðamót 5. flokks karla lokið

5. flokkur karla fór með 3 lið á Goðamótið um síðustu helgi. A- liðinu gekk brösulega en þeir enduðu í 8. sæti. Svipað gengi var hjá D-liðunum okkar en D1 endaði í 7. sæti og D2 í 9. sæti. Það er bara vona að strákarnir spýti í lófann og veiti andstæðingum sínum harða keppni í næstu verkefnum þeirra.

21.02.2012 11:15

Unglingadómaranámskeiðinu frestað um óákveðinn tíma

Það verður auglýst síðar hér hvenær það verður.

13.02.2012 10:58

Unglingadómaranámskeið

Unglingadómaranámskeiðið verður laugardaginn 25. febrúar kl. 12:00 - 14:30. Námskeiðið verður í Verkmenntaskóla Austurlands í stofu 5 (gengið inn að ofanverður / norðanverðu). Öll gögn afhent á staðnum. 

Námskeiðið er ókeypis

Á námskeiðinu er lögð áhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðluefni, skýringar og skýringarmyndir.

Námskeiðinu lýkur svo með skriflegu prófi viku síðar.

Skárning er hafinn á netfangið sirarnar@simnet.is

07.02.2012 14:13

4. flokkur kvenna á verðlaunapall

Stelpurnar í 4. flokki voru um síðustu helgi á Goðamóti Þórs á Akureyri. Á Goðamótinu er spilaður 7 manna bolti og því vorum við með 2 lið skráð til leiks eitt A-lið og eitt C-lið. Stelpurnar stóðu sig vel og komu bæði liðin heim með brons sem verður að teljast flottur árangur hjá þeim. Til hamingju með bronsið stelpur.


C-liðið




A-liðið
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 264
Gestir í gær: 60
Samtals flettingar: 229657
Samtals gestir: 51742
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 09:17:20
clockhere

Tenglar

Þróttur Nes

Nafn:

Knattspyrnudeild Þróttar Neskaupstað

Farsími:

847-8208

Afmælisdagur:

5. júlí

Heimilisfang:

Nesgata 5

Staðsetning:

740 Neskaupstaður

Heimasími:

477-1398

Kennitala:

540290-1219

Bankanúmer:

1106-26-213

Styrktaraðilar